07 apríl, 2007


Páskar og vonleysi


*laangt andvarp*

Hvað er með mig, er algerlega andlaus þessa dagana :o(


Ég var alveg viss um að það væri lesstofunni að kenna, er búin að vera á Hlöðunni hingað til og alltaf gengið svo vel að skrifa en svo er Hlaðan bara lokuð yfir Páskana svo þurfti að grípa til þeirra örþrifa ráða að skrifa á lesstofunni sem er greinilega ekki að gera sig!

Kolfinna hringdi í mig í gær þar sem ég sat við skrifborðið hans Hjalta (búin að segja upp mínu) og reyndi að skrifa, vildi fá mömmu sína til sín, væl og alles. Ég ákvað því bara eftir að hafa fengið loforð um heilan barnaskóla undir mig að pakka niður skólabókunum og bruna með þær í Hólminn.

Sit svo hér, meiriháttar útsýni út um gluggann og álein í heiminum....Eeen, það gerist ekki mikið!

Þetta var þá ekki lesstofan heldur ég..... 34 dagar í lokaskil og heilt próf sem ég þarf að taka áður.



Stundum, já stundum.....gengur bara EKKERT upp!



**Gleðilega Páska

7 Comments:

At laugardagur, apríl 07, 2007 5:09:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gledilega páska elskan.
Thad eru víst alltaf svona tímabil sem ekkert virdist ganga hjá manni en er viss um ad thú reddir thessu á endanum :)

 
At laugardagur, apríl 07, 2007 6:52:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Fáðu þér brennsa.

 
At sunnudagur, apríl 08, 2007 3:09:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilega Páska Heba.

Sendi þér góða strauma svo þú náir að "massa þetta". Efast reyndar ekkert um það.

Farðu vel með þig og hafðu það gott.

Kveðja.

 
At sunnudagur, apríl 08, 2007 3:23:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta reddast allt á endanum...hver hefur ekki lent í þessu þegar styttist í skil á lokaritgerð :-)

Hlakka til að samfagna með þér þegar þessu er öllu lokið.

Kv. Ragnhildur

 
At þriðjudagur, apríl 10, 2007 12:14:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilega páska!
Suma daga gengur allt vel og suma daga gerist ekki neitt! Vonandi eru þeir dagar bara búnir og góðu dagarnir eftir :)
Gangi þér vel og við sjáumst bráðum...

 
At þriðjudagur, apríl 10, 2007 10:23:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

brennsa
BBBBBBBBBBRRRRRRRRRREEEEEEEEEENNNNNNNNNNNSSSSSSSSSSSSSAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 
At mánudagur, apríl 16, 2007 12:24:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig er þetta með þig stelpa, engar fréttir ?
Hvernig gengur lífið ?
Ég var í bústað í Úthlíð um helgina.
Hugsa til þín stelpa.

 

Skrifa ummæli

<< Home