23 mars, 2007


- FERMING 2007 -
Sótti Dagskrá vikunnar niður í póstkassa núna áðan og get ekki sagt annað en að ég sé alveg hlessa!

Á þriðju opnunni er fermingar-auglýsing frá Póstinum og slagorðið er: Páll 29 skeyti, 3. í bekknum. Klárlega verið að espa til samkeppni um það hvaða fermingarbarn fær flestu skeytin. Eitthvað farið framhjá mér að það væri á einhvern hátt töff.

Á 15. opnu er auglýsing frá Heimilstækjum með slagorðinu: 1. flokks fermingargjafir. Á opnunni eru ódýrustu gjafirnar tvær, rakvél og hárblásari uppá 5.995,- og tvær dýrustu sem nota bené eru 26" Philips "örþunnt" sjónvarpstæki og stereópakki uppá 99.995,- !!

Á 16. opnu er Fermingargjöf til framtíðar frá Einar Farestveit og Co.hf. og þar er heimabíókerfi í einum pakka á 79.900,- !!
Á ekki bara að kaupa íbúð handa barninu undir þetta líka?!

Á 19. opnu blaðsins er auglýsing frá Sett húsgagnaverslun sem býður uppá Fermingartilboð á vönduðum fermingarrúmum og dýrasta "fermingarrúmið" er 180x200 og kostar 79.900,- !!
Hélt að maður þyrfti að vera giftur til að fá svona stórt rúm :o)

Á 22. opnu er auglýsing frá Hljóðfærahúsinu, Fermingargjafir fyrir poppara, rappara og rokkara. Þeir eru svo sniðugir að birta bara myndir af hljóðfærum og gefa ekki upp nein verð.

....og ég sem er að fara að ferma eftir 2 ár! Það er ekki nóg að þurfa að spara fyrir veislunni, fötunum og því öllu heldur sýnist mér gjafirnar vera farnar að toppa hreinlega brúðargjafir!!!
Vita fermingarbörnin svo afhverju þau eru að fermast?! Nei ég bara spyr......

3 Comments:

At föstudagur, mars 23, 2007 9:42:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er náttúrulega bara fáránlegt...ég verð bara pirruð á þessu neysluæði hérna á Íslandi.

Kv. Ragnhildur

 
At föstudagur, mars 23, 2007 3:07:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá þetta er nátla bara djók... Íslendingar eru bara svo snobbaðir og þurfa alltaf að vera með allt það nýjasta og flottasta...þannig er það og hefur alltaf verið!!!

Hafðu það annars bara gott Heba mín...

Kv.Anna María

 
At föstudagur, mars 23, 2007 10:23:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Algjör klikkun! Held annars að fermingarbörnin viti mjög vel af hverju þau eru að fermast. Fyrir pakkana auðvitað ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home