03 mars, 2007

Það er víst komin mars-mánuður... Mér finnst ég nýbúin að vera að skrifa um það að febrúar væri að skella á!
Hrós febrúar fá:
**Stefán og Kolfinna fyrir að vera yndislegust í heimi!
**Gerður og Óli nýbakaðir foreldrar
**Útskriftarfólkið mitt allt: Eygló, Hannibal, Drífa og Harpa
**Marta Birna fyrir að ferðast alein um Mexíkó og láta drauminn rætast
**Birgitta mín fyrir að brjóta ísinn!
**Og svona að lokum verð ég að fá að hrósa sjálfri mér og henni Thelmu minni fyrir að plana þetta annars ágætis heppnaða húsmæðraorlof Pækanna árið 2007

Mér tekst að halda fókusnum nokkuð vel bara, gerði vikuáætlun sem ég hef haldið so far og þá eru 6 þátttökuathuganir að baki og afritun á þeim, svo nú er bara að skrifa og skrifa og fara svo með afraksturinn til leiðbeinandans á miðvikudaginn og fá komment og halda svo auðvitað áfram :o)
Mars leggst annars ágætlega í mig, ætla að minnka vinnuna, vera í fríi á fimmtudögum og helga þá daga í ritgerðarvinnu, held að það sé svoldið sterkur leikur svona ef ég ætla að ná að klára. Þetta blogg mitt er orðið svoldið ritgerðin mín-blogg. Það vill verða þannig að maður tali um það sem manni er efst í huga hverju sinni og þessi blessun er það 24/7 !!

Í dag á að mig minnir hann fyrrverandi-tilvonandi mágur minn, Ásgeir Héðinn afmæli.. Man ekki töluna en óska honum innilega til lukku með daginn!

**Kveð svo bara að sinni

3 Comments:

At laugardagur, mars 03, 2007 4:56:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir hrósid elskan. Samt hálfskrítið að fá hrós fyrir að vera bara að skemmta sér ;)

 
At laugardagur, mars 03, 2007 5:34:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hæ sæta mín - takk fyrir kommentið í síðunni minni. Þú ert náttla yndislegust :D hef alveg fulla trú á að þú eigir eftir að massa þessa ritgerð. Ég ætla svo að reyna eftir bestu getu að koma í teitið þitt 16.júní - vona það besta !
Haltu svo áfram að vera dugleg að læra!
*sakna þín snúllan mín*
Kristín Óla

 
At sunnudagur, mars 04, 2007 3:28:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ frænka, þú stendur þig vel í þessu..hlakka til að koma í teitið 16.júní :)

Sjáumst um páskana :)

Kv.Anna María

 

Skrifa ummæli

<< Home