15 febrúar, 2007


Öskr! Mín er pirri-pirri-pú..!
Bústaðurinn var tvíbókaður svo við Pækurnar erum bústaðarlausar eins og er. Skýrist á morgun....
Mig sem var farið að hlakka fáránlega mikið til.

Despó góður í kvöld, eeelska að kúra undir teppi og horfa á imbann, í alvöru, það er svakalegt hvað ég eeelska að horfa á sjónvarpið.
Talaði annars MIKIÐ í símann í kvöld: Við Ínu í 42 mín., afa í 36 mín. og Thelmu reyndar ekki nema í rétt 11 mín til að fá bústaðarleysisfréttirnar :o(
Ömurleg nýja kókómjólkurauglýsingin.......
Það er SVOOO öruggt að ég verð nett pirruð ef við fáum engan bústað um helgina!

**Allt eitthvað svo Ö-legt í kvöld...hehe.
Hvað á ég annars að vera á öskudaginn, maður verður að vera í búning eins og krakkarnir í
Selinu c¨,)

5 Comments:

At föstudagur, febrúar 16, 2007 9:52:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æ sæta mín - ekki skemmtilegt. En ég er sammála tér med tv, ég hef fengid vidurnefnid mesti sjonvarpssjuklingurinn :D en veistu hvad eg á gód systkin, tau gáfu mér despó houswifes seriu 2 i afmælisgjøf tannig ad nu á ég seriu 1 og 2 :D
En alla vega hafdu tad gott snullz.
Love you too
Kristin

 
At föstudagur, febrúar 16, 2007 10:39:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ, þetta hlítur að vera ættgengt með sjónvarpsglápið...hehe... ég elska líka að horfa á sjónvarpið og kúra undir teppi:)enda búin að gera mikið af því hérna í Noregi!

Bið að heilsa afa næst þegar þú talar við hann :)

Kv. Anna María

 
At föstudagur, febrúar 16, 2007 12:00:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ohhh ég vissi nú ekki einu sinni að það væri byrjuð ný sería af despó...en hér eftir set ég það inní fimmtudags sjónvarpsdagskrána.

þegar ég var að vinna á frístundaheimili var ég api :-)

Vona að þið finnið bústað...Ragnhildur

 
At laugardagur, febrúar 17, 2007 12:30:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Heba mín.
Hélt að þú vissir hver væri með samböndin............
Það losnaði bústaður hjá mér í Úthlíð um helgina sennilega út af árshátíðinni á morgun. Vissi ekkert hvort hann fór í leigu.
Hann var auglýstur á miðvikudaginn.
Reyndar var Leifur búinn að fá bústað fyrir mig á Laugarvatni um helgina en ég gat ekki notað hann út af árshátíðinni. Hann var að spá í að fara sjálfur.
Reyndar búið að vera brjálað að gera út af hátíðinni. 440 manns skráðir. Logi Bergmann veislustjóri og Players mælti með hljómsveitinni Von sem stuðbandi. Ég auðvitað "aleinn" með aukafrímiða (og frítt á barnum allt kvöldið) eftir að Anna María stakk af til Noregs, hehehehehehe.......

Horfi sennilega á söngvakeppnina þegar ég kem heim á sunnudagsmorguninn. Sennilega vinnur Eiríkur Hauks en ég er kominn með "Þú tryllir mig" á heilann. Það er "sign" að það skuli vera seinast í röðinni a.m.k. í upptalningunni og líka á geisladisknum.

Farðu vel með þig og góða helgi.

 
At laugardagur, febrúar 17, 2007 7:35:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ.
Ég veit að þið fenguð bústað :)
Vonandi eruði að skemmta ykkur vel.
Kveðja Ína sys

 

Skrifa ummæli

<< Home