Hallú....
Mikið var gaman á laugardaginn!
Takk fyrir kvöldið kæra hússtjórn 2005-2006 + makar :o)
Ég verð bara alltaf svo svakalega þunn að skiptin sem ég fer og skemmti mér með bakkus ó-vini mínum verða æ færri og færri.
Það er svosem í góðu lagi svo framarlega sem ég hætti ekki að fara út og lyfta mér upp öðru hvoru með góðum vinum.
Eygló systir mín varð 26 í gær: Til lukku með daginn skvísa!
Nú, Birgitta átti 3ju stúlkuna þeirra Bergþórs á föstudaginn var, óska þeim innilega til hamingju! Alltaf gaman þegar fólk fjölgar sér og gengur vel.
Foreldraráðs fundur í dag eftir vinnu, starfsmanna fundur á morgun eftir vinnu, hitta leiðbeinandann minn á miðvikudag auk þess sem ég vinn allan daginn, heill dagur í Selinu... Busy busy.
Svo er eitt, það er frekar leiðinlegt að versla í Bónus eftir 5 á daginn, það er eiginlega bara eitt af því leiðinlegasta sem ég geri! Eins og er er það eini mínusinn við að vera úti á vinnumarkaðnum aftur.
**Hausinn frekar tómur þennan mánudaginn...Over and out
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home