
Þið eruð svo yndisleg :o*
Takk fyrir öll pústin elskurnar, sendi ykkur ást og fullt af henni til baka...
**********Takk fyrir öll pústin elskurnar, sendi ykkur ást og fullt af henni til baka...
Stefán Bjarki fékk ælupest og niðurgang aðfaranótt föstudags garmurinn svo við sváfum í sófunum á milli æla og klósettferða.
Dagurinn í gær var betri, hélt niðri því litla sem hann kom ofan í sig. Það varð því ekki mikið um ritgerðarskrif í gær. Sat þess í stað og hjúkraði honum og skrifaði helminginn af jólakortunum þess á milli.
Í dag er ég svo búin að sitja fyrir framan tölvuna síðan 10 í morgun, er enn á náttfötunum meira að segja! Klámritgerðin búin, á bara eftir að laga heimildaskrána og prenta út... Húrra!
Er í þann mund að fara að koma mér á fætur, ryksuga og skella mér í Bónus: Hamborgari með öllu tilheyrandi í matinn í kvöld :o)
Sérefnisritgerðarvinnan heldur svo áfram eftir kvöldmat þegar krakkarnir eru komnir til draumalanda.
**Lífið er bara nokkuð ljúft svona þegar á heildina er litið :o)
4 Comments:
Vá, þú ert ekkert smá dugleg. Barnauppeldi, jólaundirbúningur og massa lærdómur.... Það veitir ekki af skipulagshæfileikunum í þessari törn...
Baráttukveðjur Maja
Heba klikkar sko ekki:-) Fyrirmyndar húsmóðir, móðir, nemi og auðvitað súper vinkona.
Kveðja Erna
Hæ hæ, vildi bara láta þig vita að ég hef FULLA trú á þér þar sem þú gerir ALLT vel sem þú tekur þér fyrir hendur. Hef því ekki trú á öðru en að þú klárir þetta með stæl :)
Gangi þér rosa vel með allt saman...
Kv. Gerður Hlín
Björtu hliðarnar: ... þú þarft alla vega ekki að halda barnaafmæli í desember hehe :)
Við Helena fórum heim saddar og glaðar í gær, þú ert alveg frábær gestgjafi og allt sem þú bakar er svo gott (og hollt)!
Gangi þér vel með skólann, þetta er að verða búið í bili :)
Kveðja,
Hildigunnur
Skrifa ummæli
<< Home