27 nóvember, 2006

>>Mánudagur til mæðu<<
Er strax komin með hnút í magann yfir sérefnisritgerðinni sem ég á að skila 4. des.!
Klámritgerðin gengur hinsvegar vel, komin með 16 bls. og á bara eftir að fínisera hana.

Helgin var eins og best verður á kosið bara, kíkti í Ikea með Eygló og c.o á föstudag, alltaf gaman að kíkja þangað. Áorkaði að kaupa jólapappír, þemað í ár verður gull, silfur og rautt. Massaði svo klámmyndina og greindi hana á föstudagskvöldið. Hélt áfram á laugardag til að verða 14:00 en þá var farið í að finna outfit-ið fyrir kvöldið og sjæna sig.
Jólahlaðborðið sjálft var ok. Myndi ekki gefa úrvalinu 10 en ég er nokkuð sátt þar sem hangikjötið, kartöflurnar, uppstúfurinn, grænu baunirnar og rauðkálið var á sínum stað ásamt síldinni góðu og reyktum laxi. Fékk mér 2 væna skammta af þessu og var nokkuð sátt.
Það var jólastemming á Fjörukránni, sungið og trallað. Við familian áttum saman mjög svo notalega kvöldstund.
Takk fyrir kvöldið elskurnar :o*
Sem betur fer eru enn eftir 3 dagar af stjörnuspánni góðu.....
**Þarf að drífa mig í tíma og skila um leið forvarnarverkefni okkar Ólafar.

1 Comments:

At mánudagur, nóvember 27, 2006 1:29:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hefði gaman af að sjá greininguna á klámmyndinni :)

 

Skrifa ummæli

<< Home