Hvað er þetta með mig og meika ekki að læra á kvöldin??Erum þetta bara við Eygló sys sem eigum við þetta hvimleiða vandamál að glíma eða hvað?!
Sit bara og vafra á netinu í stað þess að hrista fram úr erminni og alla leið fram á fingurgóma og lyklaborð eitt stk. 6 bls. verkefni um heilsuna í Hugur, heilsa og forvarnir. Er meira að segja með allar heimildir og allt fyrir framan mig. Dööööööö.......
Freydís mín og Hemmi komin heim frá Lanzarote svo brún og sæt... Jæja, ætla að rumpa þessu af og taka hann Hómer hérna til fyrirmyndar, flottur gaur :o)
**Later
3 Comments:
Jú jú held að allir þurfi að ganga í gengurm svona lagað. Maður getur nú orðið þreyttur á þessum lærdóm endalaust.
Hlakka til annað kvöld....
sjáumst
Kannast sko mjög vel við þetta. Gegnum mitt háskólanám var lærdómur á kvöldin almennt eitthvað sem bara gerðist rétt fyrir próf eða stór verkefnaskil. Ég virka hreinlega ekki eftir klukkan átta. Þetta gekk nú samt bara ágætlega...
Segiði dömur... Gerði ekkert þetta kvöld nema horfa á imbann :o/
Heba
Skrifa ummæli
<< Home