09 október, 2006


Danmörk hér kem ég.......
Ég á það til að vera alveg mögnuð þó ég segi sjálf frá. Fljótfær, hvatvís gætu sumir kallað það en það er ekki til frekari umræðu hér :o)
Var að skoða póstinn minn rétt fyrir hádegi áðan, fékk póst frá vinum mínum hjá Icelandexpress um einhversskonar tilboð svo kíkti á síðuna þeirra. Þá var klukkan á tölvunni minni 12:05. Ég les tilboðið: 2990,- fyrir flugsætið...... Ég hugsa ekki meira en bara hvaða næstu helgar séu pabbahelgar og svo byrja ég bara að skoða.
Þegar klukkan á tölvunni minni sýnir 12:11 er ég búin að bóka flug til Köben laugardaginn 11.nóvember n.k klukkan 07:15 og heim þriðjudaginn 14.nóvember klukkan 11:25 (á afmælisdaginn hennar Mörtu)
Svona byrjar vikan hjá mér.......ansi vel bara :o)
Hugsið ykkur ef ég hefði farið í tíma 11:40-13:10 - þá hefði ég ekkert verið að fara.
Ákvað að vaska upp frekar og ryksuga þar sem ég nennti því ómögulega í gær.
It was ment to be og ekkert múður......love it.
**Lífið er yndislegt, sjáðu...........

9 Comments:

At mánudagur, október 09, 2006 1:24:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jæja skvís, mín bara á leið út, þú ert alveg ótrúleg... en gott hjá þér. Heyri í þér. kv. Thelma

 
At mánudagur, október 09, 2006 1:37:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æðislegt Heba, ef einhver á skilið að skreppa til útlanda þá ert það þú ;-)
Takk fyrir heimsóknina á föstudaginn, það var frábært að fá ykkur. Þurfið að kíkja oftar.

Kv. Ragnhildur

 
At mánudagur, október 09, 2006 1:50:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er aldeilis brjálað að gera hjá þér. En frábært að þú ætlir að skella þér til útlanda, væri alveg til í að koma með:-)
Leiðinlegt að ég komst ekki í tíma til ykkar á föstudaginn, kem næst ef þið látið mig vita með aðeins meiri fyrirvara.
Kveðja Erna í sveitinni.

 
At mánudagur, október 09, 2006 1:52:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Glæsilegt hjá þér. Skyndiákvarðanir eru oft bestu ákvarðanirnar! Hefði að sjálfsögðu frekar viljað fá þig til London en Köben er jú alltaf æði.

 
At mánudagur, október 09, 2006 2:38:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk elskurnar :o)
Já, Marta, lét mér ekki einu sinni detta það í hug :o(
knús Heba

 
At mánudagur, október 09, 2006 2:43:00 e.h., Blogger dröfn said...

sæl og bless elskan : )
gott hjá þér að splæsa í miða til dk.. frábært!
hvað segir kellingin annars m næstu helgi? búin að taka föstudaginn frá? allavega, ef ekki.. drífðu þá í því.. októberfest og við ætlum að fara saman! nánari uppl á næsta leyti skvís!!

 
At mánudagur, október 09, 2006 2:50:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jey Frábært, þá fæ ég loksins að sjá þig enda langt síðan seinast :D
Knús..

Kv Kristín

 
At mánudagur, október 09, 2006 3:25:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá enn frábært! Það er svo gaman að taka svona skyndiákvarðanir um að gera e-ð skemmtilegt og maður sér nú sjaldnast eftir þeim;)

kv. Maja

 
At mánudagur, október 09, 2006 4:46:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

flott hjá þér stelpa:) alltaf gott að skella sér í smá frí:)

já og hvað seigiru með föstudaginn, ertu geim?

 

Skrifa ummæli

<< Home