Arrrg... Sit og er að gera heimildaskrá í hrikalegum borhljóðum úr íbúðinni fyrir ofan sem gaurarnir eru að taka í gegn :o( Er oft mikið að spá í að biðja Gunnar umsjónamann að flytja okkur þarna upp en hætti alltaf við það, nenni því ekki....förum aaaaalveg að fara að flytja.
Hvað er annars með veðrið?? Mega-vindur úr öllum áttum en samt ekki vettlinga- og trefils kalt.. Laufin fjúka inn um gluggann minn í tugatali dóttur minni til mikils ama: "Ég hrædd laufin, mamma henda þau út".
Er með ritstíflu, ætla að halda áfram við heimildaskrána bara....
**Farvel
2 Comments:
kuldi.. úfff. það voru sko bara lopasokkar, peysa og flíspeysa í morgun takk fyrir.. dauði og djöfull!
gangi þér vel með verkefnið, sit einmitt og rembist líkt og rjúpa við staurinn að afrita.. gaman gaman..
já og by the by.. ætlum ekki í vísó, vildum frekar hittast einhvers staðar bara, svo langt síðan síðast.. höfum örugglega um eitthvað skemmtilegra að tala um en blessað vífilfell, ikke?? : )
kemur í ljós!
hehe...segðu..
Skrifa ummæli
<< Home