27 september, 2006

Go´morgen...
Það er skrítin tilfinning að vera aftur farin að setja hugsanir sínar og pælingar niður á blað...Eeen skemmtilega skrítin samt.

Var að koma af foreldrafundi 6. bekkjar-foreldra í Melaskóla og mikið var ég stolt í hjarta mínu af honum Stefáni mínum þegar verið var að tala um stundvísi, aga og vinnufrið. Það er svo notalegt að sitja rólegur og vera 100% með á því að þegar kennarinn talar um suma sem koma of seint og suma sem trufla vinnufrið að hún er ekki að tala um hann Stefán minn :o)

Gæti auðveldlega hælt honum í allan dag.

Er svona að vinna í því að gera síðuna fína, þarf að finna heimsóknarteljara, er orðin pínu ryðguð í þessu bloggi þar sem blog.central.is er svo svakalega auðvelt miðað við þenna gaur hér.....
Ætla að skella mér í það job, fara í tíma, skreppa í Bónus að versla inn fyrir húsfundinn, sækja snúlluna, fara í Hreyfifimi, kíkja á allt það sem Villa keypti í Boston, borða hjá Eygló og c.o og halda síðasta húsfundinn með hússtjórninni minni.

Ta ta.......

6 Comments:

At miðvikudagur, september 27, 2006 12:56:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að þú sért byrjuð að blogga aftur, alltaf gaman að fylgjast með þér og þínum :-)

 
At miðvikudagur, september 27, 2006 2:37:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk ezka :o)
Heba

 
At miðvikudagur, september 27, 2006 2:57:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

velkomin aftur sæta :-)

Kveðja Ragnhildur

 
At miðvikudagur, september 27, 2006 3:01:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gaman gaman, fylgist með þér. kv. Thelma

 
At miðvikudagur, september 27, 2006 5:58:00 e.h., Blogger eiby baby said...

Hæ Heba mín. Gaman að sjá þig hérna aftur;) Fylgist spennt með.

 
At fimmtudagur, september 28, 2006 8:20:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með síðuna:)

hlakka til að sjá þig á sunnudaginn

 

Skrifa ummæli

<< Home