25 febrúar, 2007


Kæra dagbók:

Helgin búin að vera svona líka meiriháttar fín eftir inniveru og veikindi alla liðna viku....Alltaf svo notalegt og rólegt að koma á Skagann, maður þarf aldrei að skipta úr 2 gír..hehe.
Fórum þangað strax eftir vinnu á föstudag, sóttum pizzu á gamla vinnustaðinn minn sem við borðuðum með Ínu sys og familiu á Eyrarflötinni. Frændsystkinin svo ánægð að sjá hvort annað og voru agalega lengi að sofna svo kvöldið fór að mestu í spjall á milli þess sem við systur fórum inn til litlu grísanna og ég litaði á Ínu hárið :o)

Laugardagurinn var tekin rólega, fengum Bóas í hópinn þegar Eygló og Hannibal fóru suður til að vera við útskriftina sína. Lékum bara með krökkunum og tókum okkur til fyrir veisluna. Við Ína vorum svo mættar uppá Furugrund til að setja saman marengsterturnar, skera í rétti og henda öllu fram á veisluborðið rétt í tæka tíð fyrir veisluna. Miklar og góðar veitingar...Mmmmm. Þau skötuhjú fengu líka engar smá gjafir. Um kvöldmat var haldið á Eyrarflötina þar sem við gáfum krökkunum snarl í magann og háttuðum ofan í rúm. Ína og Sigurpáll kíktu svo aðeins í veislu 2 á Mörkina þar sem útskriftarparið hélt partý fyrir vini. Við Stefán vorum heima og horfðum á mynd sem er með þeim allra slökustu myndum sem við höfum horft saman á í gegnum tíðina, My Super-ex-girlfriend. Hrotti einn!

Við komum heim um 3 leytið í dag, sæl og glöð eftir helgina, skelltum okkur í Ikea familian og fjárfestum í hillum handa Kolfinnu skvísu undir allt dótið hennar. Skipulag sjáiði til ;o) Settum hana saman í sameiningu sem gekk vel enda Stefán með eindæmum góður í-skrúfari og við mæðgur afar ánægðar með hilluna inni í herbergi hjá okkur í stað dótakassanna 3ja.

**Þannig var nú helgin....Ný crazy vinnuvika framundan....Verð að halda einbeitningunni núna næstu vikur, þetta er ALVEG að verða búið!

3 Comments:

At mánudagur, febrúar 26, 2007 7:37:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ Heba og takk fyrir frábæra helgi. Eins og alltaf þá ertu til staðar þegar við þurfum á þér að halda kossar og knús Eygló og Hannibal

 
At mánudagur, febrúar 26, 2007 7:20:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

horfði á þessa mynd um daginn, hélt kannski að maður gæti hlegið af þessari vitleysu en þetta var eiginelga einum of:)

helgin var líka ótrúlega fín hjá mér, útskrift og svona fínerí:) takk fyrir kveðjuna á lagardaginn eskan, þú klikkar ekki:)

 
At mánudagur, febrúar 26, 2007 11:06:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hamingjuóskir til skötuhjúanna.

 

Skrifa ummæli

<< Home