Hvað er með þennan snjó alltaf?! Pirr pirr....
Vann til hálf sex á föstudag, sótti Krua Thai og brunaði til Ragnhildar þar sem við borðuðum saman og spjölluðum fram á nótt. Enduðum bara þrjár, ég, Ragnhildur og Sandra en það var huggó samt sem áður.
Í fyrrinótt spratt ég upp við þvílíkan hávaða, klukkan var ekki nema 05:00! Þvílíku lætin frammi á gangi, öskur og væl...Nágrannakærleikurinn er ekki mikill eftir þessa nótt! Urrr..
Hljóp hringinn minn þegar ég vaknaði, tók tímann og er ekki nema 10 mín. að hlaupa hann sem þýðir að næst verð ég að hlaupa tvo, kannski ástæðan sem ég er ekki enn farin út í dag..hmmm.
Var annars bara dugleg í heimildaleit fyrir ritgerðina í gær, kíkti á þau í 232 og var boðin í dýrindis fisk hjá þeim í 235. Horfðum á Mi:III, svo var bara farið að sofa um miðnætti.
Er svo byrjuð að taka af rúmunum, búin að vaska upp og stefni í létt þrif hérna í kotinu mínu. Á eftir að gera matseðil fyrir vikuna og skreppa í Bónus áður er krakkarnir koma.
**Ta ta
4 Comments:
Við vorum sofandi á þessum tíma og þar af leiðandi ekki með þessi læti og öskur á ganginum:)
Kv. Telma nágranni úr 221
Hehe.. Ég veit það Telma mín. Ég veit hvaða nágranna um ræðir, við Torfi vorum mætt í dyragættina til að leggja við hlustir.
kv.Heba
Talandi um að vera endalaust skipulagður...haha... :)
Kv. Anna María
Nenniru að gefa út bók um skipulag og framkvæmdagleði Heba mín? Ég er steingeit sem þýðir að ég er mjög skipulögð en ég kemst ekki með tærnar þar sem þú hefur hælana;-) Ég býð eftir bók eða námskeiði;-)
Karin
Skrifa ummæli
<< Home