Húsmæðraorlof Pækanna í Svignaskarð var meiriháttar!
Í dag Bolludag er ég heima með krakkana sem bæði eru veik.. Fékk þau lasin í hendurnar í gær svo við erum bara búin að vera að dunda okkur við að baka bollur og snúða, Stefán spila tölvu og Kolfinna leika við Bóas sem einnig er lasinn heima.
Í kvöld er það svo Heroes og CSI, eeelska mánudagskvöldin, svo spennandi.
Það stefnir í að við verðum öll heima á morgun enda bæði með hita í dag. Ætla samt ekki að gera saltkjöt og baunir, Eygló kom færandi hendi með súpuna til mín af Furugrundinni í gær sem ég spara þangað til á morgun, krakkarnir fá bara grjónagraut og þá eru allir sáttir.
Vil nota tækifærið og mátt internetsins til að óska nýbökuðu foreldrunum þeim Önnu Þóru og Andra til lukku með prinsessuna sem fæddist í gær. Til lukku!!
Við bíðum svo alveg MEGAspennt eftir að lítil frænka eða frændi Gerðar og Óla líti dagsins ljós. 21. febrúar er flottur dagur, ekki slæmt að deila afmælisdegi með honum Hannibal og svo er öskudagurinn þá og allir að halda hann hátíðlegan :o)
Ætla að fara og henda í fiskibollur með gulrótum og hvítlauk. Deigið þarf nefnilega að standa í klukkustund áður en þær eru steiktar. Girnileg uppskrift sem er í fiskbæklingnum frá Lýðheilsustöð sem kom í póstkassann fyrir helgi.
**Bollur bollur
4 Comments:
þú ert svo dugleg að elda Heba, hvernig væri að senda smá svona hugmynda-dugnaðar strauma hérna yfir hafið svo ég geti nú farið að standa mig í eldamennskunni.
Ég bíð bara líka rosa spennt eftir Gerðar og Óla kríli, barnið vildi því miður ekki deila afmælisdeginum með mér en það fær þá bara sinn eigin dag sem er nú ekkert verra svo sem :D
Annars sendi ég bara batnaðarkveðjur til barnanna og knús á ykkur öll
Kv Kristín Ólad
ég frétti af því að umsjónarmaðurinn í Svignaskarði hefði þurft að kalla til lögguna í brjálað partý.. voru það nokkuð þið? ;)
dugnaður í minni, fiskibollur ha!!!!
kíktu í partý ef þú ert í stuði á laugardaginn:)
knús
Hvad varstu svo á Oskudaginn?
Skrifa ummæli
<< Home