Hádí..
Meiriháttar staffapartý á föstudag, setti inn fullt af myndum svo endilega kíkið á fallega og skemmtilega fólkið sem ég vinn með 5 daga vikunnar :o)
Stefán garmurinn veikur um helgina svo það varð ekkert úr Skagaferð því nú ver og miður. Vorum bara heima í kotinu, við Eygló og Hannibal kíktum á smáhundasýningu með krakkana í Garðheimum í gær, krakkarnir voru mun hrifnari að dúkku sem var þarna heldur en hundunum.
Vikan leggst vel í mig bara... Gerður skráð í dag, takk fyrir takk. mikil spenna, Kolfinna að verða stóra frænka pabba síns megin.
Fer með opelskvísuna mína í hægri-stýrisenda-skiptingu núna í hádeginu og svo eru fleiri þátttökuathuganir auk þess sem maður verður að fara að skrifa eitthvað niður á blað og greina. Um helgina er svo sumarbústaður með Pækunum, hlakka alveg svakalega til. Í kvöld er það Heroes og CSI.
Ætla að prófa túnabollurnar á morgun mamma.
**Núna er það þvottur og meiri þvottur.....
1 Comments:
Af myndunum ad daema greinilega mikid stud!
Skrifa ummæli
<< Home