
....Skipulag....
Það er eitthvað sem ég gæti ekki verið án en það kemur þó fyrir að það fari út um þúfur að einhverju marki.Með því að skipuleggja, nýtir maður tímann betur og það veitir ekki af þar sem tíminn hreinlega þýtur áfram, maður sparar líka pening takist manni að skipuleggja þau mál og manni verður oftar en ekki meira úr verki.
Þrátt fyrir alla þessa skipulagni mína er ég ekki enn byrjuð á The ritgerð neitt af viti. Fer í fyrstu athugunina á morgun, hlýt að hrökkva í gang þá.
Það vill líka þannig til að það er miklu skemmtilegra að skipuleggja það sem gaman er, eins og til dæmis hvað á að vera í matinn. Gæti velt því endalaust fyrir mér þó að það endi alltaf frekar simpelt þar sem krakkarnir kunna ekki ennþá nógu gott að meta ;o)
Það er líka alltaf gaman að skipuleggja fram í tímann, ferðalög, saumó og eitthvað skemmtilegt.... Það er bara snilld að skipuleggja. Mæli eindregið með því.
Treysti mér samt ekki til að gefa út bók eða halda námskeið fyrr en skipulag heillar viku standist alveg 100%!
Verð að tjá mig aðeins um Heroes þættina, þeir eru snilld! Við mæðgin erum alltaf að kíkja á klukkuna í auglýsingahléum því við viljum einfaldlega ekki að þátturinn sé búinn. Hann er líka svo sætur hann yngri Petrelli bróðirinn með skakka munninn sem kann að fljúga :o)
**Segjum það í bili bara
2 Comments:
Hæ Heba.
Ég get kannski hjálpað þér að skipuleggja helgina.
Er með Skautahöllina í Laugardalnum á leigu á laugardaginn frá kl.18:15 - 20:15. Bara velkomin með "molana" þína. Og frí leiga á skautum...........
Kveðja.
SMS
Hljómar VEL.. Verðum líklegast uppá Skaga en hef þetta á bak við eyrað.
kv.Heba
Skrifa ummæli
<< Home