16 janúar, 2007

Árin sem koma á óvart
-Þegar barnið breytist í ungling-

Bók ætluð foreldrum

Fór á bókasafnið í gær til að ná mér í bækur fyrir Kenninganámskeiði. Í rekkanum 370 á bókasöfnum landsins er að finna bækur og rit um Uppeldis- og skólamál og ég rakst á uppgefna bók þar. Renndi augunum framhjá henni í fyrstu en gerði mér svo ljóst að við sonur minn erum á þessum tímapunkti í lífinu svo kippti henni með.... Finnst ég enn vera svo ung og í raun bara stelpa þó að í vinnunni með 15 ára unglingunum s.l. sumar og 6 ára krökkunum núna heyri ég í sífellu andstæðuna og orð eins og "Vó, hvað þú ert gömul", "Maður er orðin gamall þegar maður verður 30 og þú ert alveg að verða það", "kerling", "kona", "kella", "gamla mín"og "mamma" heyrast oft!

Fyrir Stefáni er ég samt alltaf stelpa og alltaf yngri en allar hinar mömmurnar að auki svo þar græði ég +
Ég get samt ekki annað gert en að spyrja mig, er ég nógu gömul til að ala upp og takast á við það þegar Stefán verður unglingur??!

**Svo langar mig að deila með ykkur sem lesa að til er síða tileinkuð mér á mjög svo framandi tungumáli HEBA
Hvet ykkur eindregið til að skoða hana og upplýsa mig um tilgang síðunnar, það er að segja, ef þið skiljið málið :o)

5 Comments:

At miðvikudagur, janúar 17, 2007 12:34:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já kannast mjög vel við bækur í 370 eftir að ég var að vinna á Danmarks Pædagogiske Bibliotek. Er annars viss um að þú munir standa þig vel í að ala upp ungling. Mannst svo vel hvernig er að vera ung :)

 
At miðvikudagur, janúar 17, 2007 4:06:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hei, Þetta var nú bara finnska elskan! Þú getur skipt yfir á ensku og kemst að því að þetta er klúbbur og....ber sama nafn og áin sem rennur gegnum St. Pétursborg! Þeir vita greinilega ekkert um þig þarna í Rússlandi/Finnlandi!
Knús frá mömmu

 
At miðvikudagur, janúar 17, 2007 8:45:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Eftir heila önn í að æfa mig að segja: mina olen Hildigunnur ja mina olen kaksi kymmenta kaksi vuotta! er eina orðið sem ég skildi á síðunni: opiskelijoiden (eitthvað tengt því að læra) hahah þetta voru 5 einingar sem eiga eftir að nýtast illa í framtíðinni!
Hlakka til að hitta þig á laugardaginn :)

 
At fimmtudagur, janúar 18, 2007 10:48:00 f.h., Blogger Heba Agneta said...

Múhahaha..
Heil Á í Rússlandi "nefnd" eftir mér, verra gæti það verið ;o)

 
At þriðjudagur, janúar 23, 2007 9:47:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

HEBA was founded in summer 1999 to proceed and coordinate activities of HUT russian language students and Russia enthusiastics. Aim of the club is to advance knowledge of Russian culture and thereby get it closer to non-Russians by organizing excursions and other events. The name of the club - HEBA - a proper noun in Russia is the name of the river flowing through St.Peterburg.

The beauty and decadence, poverty and prosperity, happiness and melancholy of Russia and Russian way of life are fascinated by many. Magnificence of tsar period, art treasures and heritage of Soviet Union - only about a few hundred kilometers from capital of Finland.

Excursions organized by HEBA are not only to gather some experiences but also to advance understanding of Russian culture. The foundation of HEBA was motivated by successfully executed excursions to St.Petersburg which are in the future schedule, as well. Also more through explores of hidden abysses of Russia might be expected from HEBA as Russia is a country of wide extent...

 

Skrifa ummæli

<< Home