29 janúar, 2007

One Tree Hill er fínn þáttur, get ekki sagt það sama um O.C :oS
Heroes á eftir...mega spennó. Þriðja sería af Lost að byrja líka en hef hingað til tekið CSI framyfir, held ég haldi því áfram.
Mánudagskvöldin SVO frátekin fyrir imbann.

Er öll að koma til af inflúensunni, hósti og sviti svona það sem eftir er svo á morgun er það skóli og vinna.

Spennandi febrúar framundan.... Spilakvöld með Trillunum og hin árlega sumarbústaðaferð Pækanna auk alls þess sem hinn annars ágæti hversdagsleiki hefur uppá að bjóða.

Er búin að horfa á Brúðubílinn á dvd með henni Kolfinnu um helgina, krúttleg og falleg skemmtun sem ég mæli eindregið með sem hófleg, að sjálfsögðu afþreying yngri kynslóðarinnar.

**Það er nebblega það

6 Comments:

At þriðjudagur, janúar 30, 2007 10:07:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

úff ég fékk nú alveg ógeð af One Tree Hill í síðustu seríu, finnst einmitt O.C. skárra þó ég hafi nú ekki fylgst mikið með því. Svo fannst mér Lost komið út í svo mikið rugl að ég gafst upp á því líka :-) Nú er það bara American Idol á mánudögum hjá mér og þar er sko fólk ekki alveg í lagi...held ég yrði bara hrædd að búa í USA.

Þetta er örugglega orðið með lengra kommenti sem þú hefur fengið svo það er best að stoppa núna.

Kv. Ragnhildur

 
At þriðjudagur, janúar 30, 2007 9:03:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

One Tree Hill er sko málið í dag...hehe... lifi mig alveg þvílíkt inní þessa þætti!!! O.C. ekki alveg að gera sig hins vegar...

Gott að heilsan sé öll að koma til:)

Kv.Anna MAría

 
At miðvikudagur, janúar 31, 2007 1:31:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

úfff Heroes, þessi þáttur er alveg að fara með mig!!! ligg stjörf. Get ekki tjáð mig um OTH og O.C. rugla þeim alltaf saman og held að ég sé að horfa á sömu vitlaysuna, not mæ kop of te:)
hvenar á svo að skella sér á smá tjútt með uppunum?
Kv. Drífa A

 
At miðvikudagur, janúar 31, 2007 4:37:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Oh my hvað sjónvarp getur náð tökum á manni, ég er næstum hætt að horfa á stöð 2 er búinn að fá alla þætti. Bið að heilsa

 
At miðvikudagur, janúar 31, 2007 4:41:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Halló halló kom ekki helmingurinn sem ég skrifaði, hvurslast er þetta eiginlega..... jæja nenni ekki að skrifa aftur.

 
At miðvikudagur, nóvember 12, 2008 4:40:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Great work.

 

Skrifa ummæli

<< Home