Hola..
Manni langar bara að læra spænsku eftir ANTM í kvöld..híhí.
Fyndið líka að hafa séð umræddan One Tree Hill þátt fyrir áramótin og hafa þá ekki haft hugmynd um að það væri ein stelpan í ANTM að leika gelluna.
Stuð að mæta í vinnuna í gær, var með hor, hóstandi og svoldið sloj en alltaf gaman að hitta krakkana sem tóku mér fagnandi og ég fékk nokkur knús :o)
Sótti Kolfinnu eins og vanalega eftir vinnu og þá var bara búið að flytja litluna mína alfarið yfir á aðra deild og hún tók rígmontin á móti mér og sýndi mér Bárudeildina sína með bros hringinn þessi elska. Fengum Ellen og Emblu í heimsókn, Kolfinna mín var bara nokkuð gestrisin framanaf en frekar uppstökk eitthvað og þreytt, það tekur á að skipta um deild.
Fór á námskeið eftir vinnu í dag, lærði svo sem ekkert nýtt en alltaf gott að rifja upp og minna mann á hlutina. Seinni hluti námskeiðisins á morgun og þá verður tekið á öryggismálum og skyndihjálp sem er eitthvað sem ég er alltaf hrædd um að kunna svo aldrei þegar á reynir svo það verður bara gott mál.
Svo er bara að fara að demba sér í blessuðu ritgerðina, ekki má hún verða út undan í allri þessari vinnu, þarf kannski að minnka við mig þegar líður á, er samt að reyna að byrja strax og vinna jafnt og þétt í henni en tíminn sem ég hef á morgnanna er eitthvað svo stuttur og það er bara febrúar all ready á morgun. Svo er ég ekki enn farin að hreyfa mig og ætlaði varla að hafa af 10 armbeygjur hérna á stofugólfinu áðan þegar ég fékk þá hugmynd að testa mig svoldið, ég sem var farin að taka 100 frekar auðveldlega í byrjun desember!!
Það er víst ekki allt hægt í þessu lífi, maður verður að velja og hafna :o)
Ég er samt frekar slök á kvöldin alltaf, vil helst bara sitja og horfa á imbann eftir að krakkarnir eru farin að sofa. Spurning um að nýta þann tíma betur.....Spái aðeins í því.
Pabbahelgi annars framundan...Það þýðir fullt af tíma fyrir mig. Við Stefán förum fyrst saman í viðtalstíma á föstudag og hann fær einkunnir og svona, hann fær alveg örugglega fyrstu einkunn í að vera yndislegastur, hitt er bara plús :oD
Svo á föstudagskvöldið ætla ég að fara til Ragnhildar og borða og spila með Trillunum mínum. Stefnan sett á MRL kl.9:15 á laugardagsmorguninn hjá Callie, veit varla hvort ég þori...hmmm. Svo ætla ég að fara í heimildaleit og vinna að grindinni fyrir ritgerðina og undirbúa þátttökuathuganirnar í næstu viku. Taka góða ritgerðarhelgi.
**Mjæja...Farin að geispa, ble.....
3 Comments:
Ef thig langar ad laera spaensku get ég maelt med gódum skóla í Mexíkó :)
Annars gott ad heyra ad thú sért oll ad koma til.
heyrðu Góða:) slappaðu aðeins af! þú ert nýbúin að vera veik og hver heldur að armbeyjur eins og ekkert sé! og hvað þá að fara hlaupa úti! Þetta gerir engin nema Heba:)
Takk fyrir kveðjuna hjá Ísold. Hlakka til að sjá þig í kvöld þó ég stoppi stutt því músin mín er veik!.
knús og farðu vel með þig
kv
Lilja yfirdómari:)
það vantaði "gerir armbeyjur"
Skrifa ummæli
<< Home