Farið að hlýna... Við Opelskvísan mín erum sáttar við það, reif samt baksýnisspegilinn úr í gær, vissi ekki að ég væri svona sterk!
Er slöpp,(ekki þynnka) með særindi í hálsi og þungt yfir höfði, sárt að hósta, krossa fingur.
Fékk æðislegan fiskrétt hjá Hjalta og Vilborgu í gær sem minnir mig á það, hann á lím fyrir baksýnisspegilinn, verð að reyna að hengja hann upp í dag annars gæti vikan endað með árekstri.
Heill dagur í Selinu á morgun og náttfataþema alsráðandi, starfsfólk "ræður" hvort það mætir í náttaranum en fengum samt stingandi augnaráð frá Hjörvari sem ég las úr: "Komið samt í náttfötum!" Snoopy náttfötin eru alveg að virka, þarf samt aðeins að hugsa málið, eitthvað svo úldið og þreytt við náttföt annars staðar en heima hjá manni.
**Hungur steðjar að
2 Comments:
Jæja það verður gaman að vita hvort þú mættir í náttfötum en ég giska á að þú hafir ekki gert það.kv. Eygló
Já það hlínar hjá ykkur en kólnar hjá mér! Það var mínus 13 í morgun þegar ég keyrði krakkana í skólann... men það var sko kalt! Það er samt alltaf logn hérna, þannig þetta er ekki alveg eins slæmt og það lítur út fyrir að vera...
Annars ætlaði ég bara að kvitta :*
Kveðja frá Noregi...
Anna María
Skrifa ummæli
<< Home