06 janúar, 2007

Þá er allt jólaskrautið komið niður í kassa og búið að ryksuga og hreingera enda jólin að kveðja að þessu sinni.

Árið byrjar vel, er komin með vinnu með skólanum. Verð að vinna í frístundaheimilinu Selinu sem staðsett er í Melaskóla, frá 13:15-16:30 alla virka daga. Ég verð í skólanum á mánudögum og þriðjudögum til 11:30 og aðrar klukkustundir í sólarhringum vikunnar fara í rannsóknina mína, skrifa ritgerðina, halda heimili og ala upp börnin mín :o)

Heimsótti Lilju og Teit í gær sem er kannski ekki frásögufærandi nema það að við sátum og skoðuðum leigumarkaðinn á netinu meðal annars og Heba fékk bara fyrir hjartað! Verðin á leigu eru sky-high og bara vel það..... Þannig að ef þú ekki átt íbúð til að leigja mér þá kannski þekkiru einhvern sem gerir það eða þekkir ef til vill einhvern sem þekkir einhvern sem á íbúð :o) Er nú búin að nefna við hana systur mína (Eygló) og biðja þau að skoða möguleikann á að leigja saman en það hlaut ekki mjög góðar undirtektir. Það eru svosem plúsar og mínusar við það en persónulega finnst mér plúsarnir vera mun fleiri.

**Meðleigjandi óskast ;o)

1 Comments:

At miðvikudagur, janúar 10, 2007 9:52:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

...mér finnst hálf tómlegt þegar allt skrautið er farið en samt ágætt að taka þetta niður :-)

Kv. Ragnhildur

 

Skrifa ummæli

<< Home