10 janúar, 2007

Í dag á hún elsku Jóhanna mín afmæli;
Til lukku með daginn!

Ég er umvafin fjölskyldumeðlimum og vinum sem eiga afmæli í janúarmánuði;
Birgitta varð 26 2., Thelma Hrund varð árinu eldri 3. og fyrst okkar Pækanna til að nálgast The Big and Scary 30!, Sturla varð fullorðinn í gær 9. þegar hann náði The Big and Scary 30!, Jóhanna er árinu eldri í dag, Ína sys verður 23ja á laugardaginn kemuren þá er 13. og mig minnir að hún hafi fæðst föstudaginn 13. hérna um árið, Viðar frændi verður 25 þann 20., Eygló sys og Freydís deila þeim 21. en þá verður Eygló 26 og Freydís 25 stödd út'á HM í Þýskalandi, Maja vinkona verður 28 ára önnur okkar Pækanna 23. og elskulega amma mín Heba hefði orðið 69 ára þann 24.

Þannig er nú það.
Vinnan byrjar annars vel, algerar rússlur þessir 1. bekkingar, svo opin, hugmyndarík og skemmtileg að ég óska alla daga frá 13:15-16:30 að ég væri 6 ára aftur.....
Er annars ekki byrjuð í skólanum, ekki fyrr en næsta mánudag en er svona með ritgerðarvinnuna á bak við eyrað, þarf að fara að gera rannsóknaráætlun og ramma utan um þetta allt áður en ég held með kaldan svita undir höndum og þar af leiðandi lyktandi af svitalykt sökum stresssssss á fund leiðbeinandans míns í næstu viku. Er svona aðeins byrjuð að skynja stressið, óvissuna og alla spennuna sem einkenndi Trillurnar mínar síðasta vor :o)

**Verð að fara og gera eitthvað að viti eftir að hafa velt þessu fyrir mér, later.

3 Comments:

At miðvikudagur, janúar 10, 2007 3:22:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með vinnuna!
Jeremías, dananum þætti þetta nú mál til að fá stress yfir; heimili, tvö börn, lokahnikkur í Háskóla og VINNA! Þú yrðir sett á stofnun hér, alger krimmi gegn þjóðfélagslega hagkvæmu kerfi!
Go, go go, girl!
Knús frá mömmu.

 
At miðvikudagur, janúar 10, 2007 7:42:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

isss þú rúllar þessu upp :-)

Kv. Ragnhildur

 
At miðvikudagur, janúar 10, 2007 8:49:00 e.h., Blogger Heba Agneta said...

Takk fyrir knúsið mamma...
Það er rétti andinn Ragnhildur!

Go ég go ég go go go ég....

 

Skrifa ummæli

<< Home