...Úldn, úldn...Enn drulluslöpp og ekkert á leið í vinnuna á morgun.
Mig langar að hrósa fólkinu í kringum mig og hrós janúarmánaðar fá þrír einstaklingar:
*Hann Siggi föðurbróðir og greinilega diggur lesandi bloggsins kom færandi hendi til mín í dag með fullan haldapoka af dvd myndum, malt, coke-light, 3 malta súkkulaði og kryddaða kjúklingaleggi til að henda í ofninn. Hugulsemi og náungakærleikur sem þessi gerir lífið svo yndislegt!
*Eygló systir mín og Hannibal minn fyrir að vera búin með háskólanámið sitt!!
Jebb, þau skiluðu BA og BS ritgerðunum sínum inn á föstudag og útskrifast þann 24. febrúar n.k., gæti ekki verið stolltari af þeim. Eygló fær líka extra hrós fyrir að þakka mér í Formála ritgerðarinnar... *roðn-mont*
Fullt af yndislegu fólki í kringum mig sem á skilið að fá hrós en læt þrjú nægja þennan mánuðinn.
**Sæl að sinni
4 Comments:
farðu vel með þig.
knús
Lilja
til hamingju með systur þína og mág...til hamingju með þetta Eygló og Hannibal.
Ekki slæmt að eiga einn svona frænda, ótrúleg hugulsemi.
Vona að þú hressist sem fyrst og verðir orðin eldspræk á föstudaginn.
Kv. Ragnhildur
Láttu þér batna Heba mín, munur að eiga svona góðan frænda :)
Njóttu þess bara að drekka coke light og malta súkkulaði... þótt svo það sé ekki nammidagur :)
Til hamingju með námið Eygló og Hannibal...
Kveðja frá Noregi...Anna María
Æ elskan mín vonandi ertu að hressast. Myndi svo koma með eitthvað gott til þín ef ég væri nú í höfuðborginni. Sendi þér strauma!!!Láttu þér nú batna sem fyrst.
Skrifa ummæli
<< Home