Annáll 2006
*Eygló litla systir mín varð 25 ára í janúar.
*Ég var í hússtjórn Vetrargarða þangað til í haust og það var rosalega skemmtilegt þar sem við héldum fundi reglulega með miklu gúmmelaði-svona nokkurskonar saumó og héldum skemmtanir fyrir yngstu íbúa hússins. Eignaðist góða vini og kunningja úr þeim hópi.
*Í mars, nánar til tiltekið 4.-7. mars skellti ég mér til DK, gamla góða Aarhus þar sem ég heimsótti Írisi og Báru, fór út á lífið og verslaði auðvitað heilan helling á mig og krakkana.
*Prófin gengu vel í maí og eftir þau hófst sumarvinnan, ég vann sem leiðbeinandi í vinnuskólanum og var með hóp af 9. bekkingum í heimagörðum og sumarið var meiriháttar skemmtilegt.
*Thelma æskuvinkona mín og Pæka giftist Jóa sínum á þjóðhátíðardaginn, sama dag og mamma og Kristján áttu 2 ára brúðkaupsafmæli (eins gott að fara með þetta rétt, sorry mamma :oS). Við vinkonurnar gæsuðum hana viku fyrir stóra daginn og það var meiriháttar gaman.
*2. júlí varð ég árinu eldri, 27 ára og það var í fyrsta sinn sem ég hélt ekki uppá daginn en þau mistök geri ég ekki aftur :o(
*Stefán Bjarki varð 11 ára í sama mánuði og hélt hvorki meira né minna en 2 veislur í tilefni þess.
*Við systur ásamt fylgifiskum leigðum okkur sumarbústað í Svínadal og fórum í helgarferð saman sem héðan í frá verður árlegur viðburður hjá okkur.
*Kolfinna byrjaði á nýjum leikskóla og eftir erfiða aðlögun er hún alsæl. Hún varð 2ja ára 9. september og í tilefni var haldin mikil afmælisveisla henni til heiðurs.
*Mamma og Kristján komu til landsins í ágúst og heimsóttu okkur systur.
*Rockstar æðið á Íslandi náði hámarki með tónleikum Magna og Dilönu á Broadway og ég lét mig að sjálfsögðu ekki vanta og skemmti mér meiriháttar vel í góðum félagsskap.
*Í einhverju móki bókaði ég ferð til DK og fór þangað að morgni 11. nóvember, verslaði allar jólagjafirnar nema 3 og heimsótti mömmu og c.o, hitti Írisi og Arnar og gisti hjá henni Kristínu Óla í kóngsins köbenhán.
*Haustönninn í skólanum gekk vel en var strembin og í þessum töluðu orðum er ég enn að bíða eftir einkunnum.
Í heild var árið 2006 gott en jafnframt strembið, fann til dæmis fyrir því í sumar hversu erfitt er að vera ein þegar maður þarf að vera í vinnu frá 8-16 og eiga eftir að gera ALLT annað þegar heim kemur á meðan maður ræður sér algerlega sjálfur með skólann þó það krefjist mikils aga og einbeitningu er það öðruvísi.
Það sem stendur uppúr á árinu eru yndislegu börnin mín, hvað ég er rík að eiga þau að, þau gefa mér svo mikið og eru mér mikil hvatning til að standa mig vel í því sem ég tek mér fyrir hendur.
Ég gekk í gengum ýmislegt persónulegt á árinu sem gekk vel að vinna úr með hjálp yndislegra vina.
Nú svo er sambýlið hérna á görðunum búið að vera meiriháttar og ég búin að styrkja böndin við systur mína og fjölskyldu og við Freydís líka orðnar góðar vinkonur auk þess sem við fjölskyldan eignuðumst góða vini þau Hjalta, Vilborgu og Ragnheiði Elísabetu sem hafa reynst okkur vel og verið meiriháttar að kynnast.
**Þannig var nú árið 2006 í STÓRUM dráttum.....

8 Comments:
hæ hæ greinilega frábært ár hjá þér Heba og næsta ár verður eflaust líka frábært. Flottur pistill ég var búin að gleyma að þú hefðir farið tvisvar út sem er snilldin ein og mundu það bara að þú áttir að fyllilega skilið. b.kv. Eygló
Úbbs, ljúfust!
Tveggja ára "hjúskaparafmæli" var það heillin!
Rétt skal vera rétt. Knús og kossar.
Mamma

Gaman að lesa pistilinn þinn og rifja upp árið hjá þér. Já þú ert sko heppin að eiga þessi yndislegu börn þín, lífið væri nú frekar tómlegt án þeirra...
Ragnhildur
Mamma vill leggja áherslu á orð sín..hehe
hæ hæ og takk fyrir síðast sæta mín. Alltaf gaman að koma í heimsókn til þín. Verð nú að hitta hana Kolfinnu næst þegar ég kem, gengur ekki lengur. Vonandi verður árið 2007 þér gott enda áttu ekkert nema það besta skilið elsku vinkona.
Kveðja frá Köben
Kristín
Tú stendur til ótrúlega vel Heban mín og ég hlakka til ad hitta tig!
Knús og kossar,
Bára
Hi Heba.
"Hangi" í sólbadi á Kanarí........... 20-24 stig.
Bara ljúft.
Mikid labbad, bordad og drukkid.....
Bid ad heilsa.
Kvedja
SMS
Skrifa ummæli
<< Home