
So you think you can dance... Óska þess á hverju mánudagskvöldi að ég kynni að dansa svona flott!
Það er geggjað að horfa á þau dansa, salsaatriðið hjá Benji og Heidi (hér að ofan) var geggjað í kvöld!
Hvað úrslitin varðar hef ég á tilfinningunni að Travis vinni en held með frændsystkinunum Benji og Heidi, þau eru geggjuð og manni líður eitthvað svo vel að horfa á þau dansa.
Allir að horfa á morgun kl.21:00 á Sirkus, alveg hægt að taka smá pásu frá öllu öðru rétt á meðan ;o)
Ef ég finn tíma eftir áramót ætla ég að fara á dansnámskeið, ef ekki þá bara þegar tími finnst.... Í ellinni þess vegna, skal læra spor þótt það verði mitt síðasta..hehe.
Smá "fróðleikur" fyrir ykkur með fyrir svefninn:

Þú ert léttsteikt dramadrottning.
Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust
"rare",
"medium rare",
"medium"
og "well done"
værir þú "medium rare", léttsteikt og meyr undir tönn. Léttsteiktar dramadrottningar eru ávallt gerðar úr besta hráefni. Þær eru lífrænt ræktaðar og því í raun móðgun að líkja þeim við hamborgara. Nær væri að framreiða þær sem steikur með góðri rjómasósu og bökuðum kartöflum.
Léttsteiktar dramadrottningar skammast sín ekki fyrir að vera dramadrottningar. Þvert á móti eru þær stoltar af því og leggja rækt við þann hluta persónuleika síns. Gott jafnvægi ríkir á milli drama og yfirvegunar. Í raun hefur léttsteikta dramadrottningin fulla stjórn á dramatíska hluta heilans. Hún er því fær um að halda dramanu í skefjum þegar við á en gerir út á það þegar hún er í stuði til þess.
Léttsteiktar dramadrottningar eru tilfinningaríkar. Þær eru gjarnan leiðtogar í vinahópi sínum, eru vel liðnar af flestum, dáðar af mörgum en einnig öfundaðar af sumum. Hin léttsteikta drottning er hins vegar haldin jafnaðargeði og lætur hólið ekki stíga sér til höfuðs eða öfundsýki koma sér úr jafnvægi.
Hversu mikil dramadrottning ert þú?
Þar hafiði það kæru þið :o)
**Þreyta, góða nótt sweeties
P.S. Anna María frænka, njóta skaltu síðustu klst. sem þú ert 20..híhíhí.
3 Comments:
Sammála með Benji og Heidi, þau eru æði og ég segi alltaf "ohh ég vildi að ég kynni að dansa svona". Ég gæti líka alveg trúað að Travis vinni.
Gangi þér vel elskan í skólanum.
Ragnhildur
verst hvað þessi frændsystkin eru ófríð en að dannsa kunna þau, alveg sammála því:)
en hvernig er þetta koma, á ekkert að mæta í steminguna í odda?? fá að skjálfa úr stressi og nöldra um hvað allt sé erfitt og leiðinlegt og fólk skilur það svo vel...hvað gæti verði betra í miðju próftímabili, hummm???
Æi, það er betra að læra bara heima eða inná lesstofu..
Takk samt.
Skrifa ummæli
<< Home