28 desember, 2006

Áramótaheit er eitthvað sem ég hef ekki strengt í mörg ár, ekki síðan ég var í 9.bekk og ætlaði að hætta að borða nammi... Hmm, eins og það hafi gengið upp hjá súkklaðigyðjunni sjálfri!

Þessi áramótin 2006-2007 ætla ég hins vegar að strengja ein. Hver þau eru, er trúnaðarmál en er búin að vera að undirbúa í svolítinn tíma og hlakka til að hefja nýtt og betra ár með þetta markmið að leiðarljósi.

Árið 2007 á eftir að verða mjög viðburðaríkt hjá mér og krökkunum þar sem allt stefnir í útskrift mína í vor og þar af leiðandi búferlaflutninga og atvinnuleit, fæ fiðrildi í magann við tilhugsunina - er bæði spennt en kvíði líka mikið fyrir því að flytja af görðunum og fara í aðra átt en Eygló sys og c.o, Freydís mín og c.o og Vilborg, Hjalti og Ragnheiður Elísabet. Á erfitt með að ímynda mér svona góða granna á nýja staðnum....

Ég hlakka samt sem áður til að hefja nýtt ár, maður má eki vera of svartsýnn, breytingar eru oft af því góða (skulum við ganga út frá allavega).

Í kvöld er jólasaumó hjá Pækunum, það verður notó þar sem við erum allar á landinu aldrei þessu vant :o)

**Set inn annál ársins 2006 bráðlega ;o)

4 Comments:

At fimmtudagur, desember 28, 2006 8:46:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Heba þú veist hvað ég er forvitin, það er bannað að segja frá áramótaheiti sem er trúnaðarmál :-( En góða skemmtun í saumó og hlakka til að hitta þig sem fyrst.

Áramótakveðja,

Ragnhildur

 
At fimmtudagur, desember 28, 2006 8:46:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æ þetta hljómaði eitthvað asnalega, ég meina að segja ekki frá áramótaheitinu :-)

 
At föstudagur, desember 29, 2006 11:24:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Heba nýtt ár á trúlega eftir að verða skrítið þar sem við höfum verið síamstvíburar núna í næstum 3ár. snökt snökt. En aldrei að vita nema við verðum í nágreni hvor við aðra sjáum hvað gerist. Elsku Heba takk fyrir frábært ár sem er senn að líða er alveg viss um að mín háskólaár hefði ekki getað verið betri með þig mér við hlið. Kær kveðja Eygló sys

 
At föstudagur, desember 29, 2006 9:46:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir í gær. Alltaf æði að hittast allar en var sko með suð fyrir eyrunum þegar ég lagðist í rúmið :) Á svo sannarlega eftir að vera ár breytinga hjá okkur báðum. Verður spennandi að sjá hvað gerist. Hlakka til!

 

Skrifa ummæli

<< Home