11 desember, 2006


HÚRRA !!
Ritgerðin er búin, var að koma úr Odda eftir að hafa prentað hana út og skilað :o)
Kláraði hana á laugardagskvöldið svo sunnudagurinn fór í að þrífa allt hátt og lágt (ekki inni í skápum samt en skúraði og allt), hlusta á jólalögin á Bylgjunni, klára að skrifa öll jólakortin og pakka inn öllum jólagjöfunum! Á bara eftir að kaupa handa Stefáni, ætla að geyma hana fram yfir próf svo maður eigi eitthvað eftir *mont mont*

Er svo búin að vera á snatti í dag ásamt Helga Reyni, bauð mig fram við að aðstoða hann í jólagjafaleiðangri sem gekk svona ansi vel, hann kláraði allar sínar gjafir með minni hjálp í Kringlunni áðan :o)

One Tree Hill 20:00 á Skjá 1 og úrslitaþáttur So you think you can dance í kvöld 21:00 á Sirkus, held með Benji og Heidi.
Á morgun er það svo blessuð Aðferðafræðin...reikna reikna.

**Ætla að sækja bjútíbolluna mína á leikskólann og fara með 3 ruslapoka af fötum í Fjölskylduhjálp.

11 Comments:

At mánudagur, desember 11, 2006 8:15:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

glæsó, til hamingju með þetta...gangi þér vel með það sem eftir er.

Ragnhildur

 
At mánudagur, desember 11, 2006 8:38:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Stundum skil ég ekki alla þessa orku sem þú hefur Heba. Þú ert ofurkona :)

 
At mánudagur, desember 11, 2006 9:38:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ufff langar þér ekki að koma til mín að þrífa.... þar sem ég er nú "bara" heimavinnandi :)

Þú stendur þig vel:) gangi þér vel að reikna

verðum í bandi
Lilja

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 2:15:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamó gella. Það vantar ekki kraftinn í þig vinkona. Gangi þér bara alveg æðislega vel í áframhaldinu. Hittumst svo hressar 28 á Lerkigrundinni, ef ekki fyrra.
Kyss kyss ;-)

Júlla.

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 2:16:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ef ekki fyrr!!!

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 11:26:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég held ég hafi bara aldrei lesið um skipulagðari konu en þig Heba mín!! hihi
kv. Karin

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 12:20:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu fórstu að læra eftir hryllingsmyndina??? voðaleg orka er þetta:)
Gangi þér vel með aðferðafræðina, ég kem ekki á morgunn er að fara í próf, skróp þá tvisvar þessa vikuna, úff.... mæti á föstudag og það sem eftir er fram að jólum:))
Heyri í þér dúlla, kveðja Thelma

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 12:30:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekki að spyrja að þér Heba, þú ert ótrúleg :) Gangi þér rosa vel í því sem þú átt eftir í skólanum. Ef þig vantar einhverja hjálp, vilt að ég sæki Kolfinnu í leikskólann einhvern daginn eða e-ð þá læturu mig bara vita. Er búin í prófum og er bara að fara að jólastússast :)
Láttu mig endilega vita... þetta er minnsta mál.

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 3:07:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

sagdi tér ad vera ekki ad hafa áhyggjur af tessu, tu ert svo skipuløgd og dugleg stelpa. Til lukku min kæra og hlakka til ad sja tig um jolin :D knus og kossar fra køben
Kristin

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 3:44:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jiii!! Heba a eg ad trua ad thu hafir ekki thrifid inni skapunum?? :-)

 
At þriðjudagur, desember 12, 2006 9:50:00 e.h., Blogger Heba Agneta said...

Mehehe.. Nei, Marta sleppti því ;o)

Takk Gerður mín, búin að redda helginni svo þá er ég í góðum málum. Takk samt, ert velkomin að reka inn nefið og bumbuna eftir 16:00 alla virka daga fram að jólum, langt síðan ég sá þig :o)

Ég kláraði eftir myndina Thelma og raðaði svo 300 myndum í myndaalbúm sem mamma sendi mér úr framköllun í DK :o)

Þið fáið SVOOO mörg knús fyrir þessi orð í minn garð sem ég geri nú kannski frekar mikið úr á þessari síðu minni...hmmm.

 

Skrifa ummæli

<< Home