17 desember, 2006

HBM módelið
TTM mótelið
TPB módelið
TRA módelið... gæti haldið svona áfram, man bara ekki fleiri í augnablikinu sem segir mér að ég þurfi að lesa betur fyrir prófið.

Step up er mynd sem mig var búið að hlakka rosalega til að sjá þar sem ég komst ekki á hana í bíó á sínum tíma, GOD hvað myndin er léleg! Tók hana í gær og fór með til Thelmu þar sem við komum okkur vel fyrir í notalega sófanum hennar. Alger B-dansmynd sem er alveg eins og allar hinar dansmyndirnar sem hafa komið út. Stelpan var ekki nógu sæt og alveg glötuð leikkona, söguþráðurinn sökkaði og tónlistin líka. Gaurinn er sætur og dansatriðið í lokin flott...that's it!
Þannig er nú það.

Ekki nema 2 skóladagar og ein jólaskemmtun eftir hjá Stefáni, 1 próf hjá mér og 3 leikskóladagar hjá Kolfinnu og þá eigum við 2 notalega daga saman áður en blessuð (einmana) jólin ganga í garð.
**Þannig er nú það

2 Comments:

At mánudagur, desember 18, 2006 9:47:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hey ég skal lofa þér því að þú verður ekki mikið einmana með okkur Antoni. Hann mun alveg láta þig hafa fyrir sér og segir alla daga Eykú, Banniba, Bóa og Beba. Beba oma. Hann er svo spenntur að Beba sín komi. Á þessu heimili er ekki sagt: Ef þú ferð ekki að sofa færðu ekkert í skóinn. Hér er sagt: því fyrr sem þú sofnar því fyrr kemur Beba sín :)

 
At mánudagur, desember 18, 2006 10:50:00 e.h., Blogger Heba Agneta said...

Ooooooooo...krútt krútt.
Takk elskan

 

Skrifa ummæli

<< Home