
Blessuð jólin gengin í garð og aðfangadagskvöldið var notalegt þrátt fyrir að gullmolana mína tvo hafi vantað. Anton og Bóas voru í stuði svo þetta var mjög gaman bara. Vorum að koma úr jólaboði hjá afa og Sigríði, dýrindis hangikjöt og með því.....Mmmm.
Fékk helling af fallegum jólagjöfum þetta árið og krakkarnir enn fleiri, alltaf gaman að fá pakka þó maður eldist með hverju árinu. Takk fyrir okkur allir :o*
Við Ína erum tvær í kotinu í kvöld, Anton sofandi svo ætlum að hafa það notó, borða meira Mackintosh og drekka jólaölið eina sanna, kannski Eygló og Hannibal kíki í spil.
Það eru svo bara 4 dagar í að Stefán og Kolfinna komi til okkar og þá verður heldur betur stuð á bænum :o)
**Hafið það notalegt yfir hátíðarnar
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home