23 nóvember, 2006

Mynd vikunnar er í takt við ritgerðarþemað mitt: Ron Jeremy

Brrr... Það er kalt!
Pabbahelgi framundan og þá á að klára eitt stk. klámritgerð og fara á jólahlaðborð í faðmi stór-fjölskyldunnar pabbamegin (ef stór-fjölskyldu skildi kalla..hehe):
Ég
Eygló + Hannibal
Ína + Sigurpáll
Pabbi + Stína
Afi + Sigríður
Siggi frændi
Anna María frænkumús
Birgitta dóttir Stínu og
Rúna dóttir Stínu + kærasti
= 14 manns.
Þetta verður án efa notalegt. Allavega finnst okkur systrum gott að borða og að borða saman verður enn betra :o)

Er í smá vandræðum, vantar klámmynd til að horfa á og greina í ritgerðinni svo ég geti rumpað henni af um helgina.
Tek VEL á móti lánuðum myndum og heiti fullum trúnaði, nema hvað!
Hún er fyndinn kennarinn minn í þessum blessaða klámáfanga. Sendi póst í gærkvöldi um að nú væri búið að fara yfir efni námskeiðisins og að við þyrftum ekki að mæta í tvo síðustu tímana. Þar sem þeir eru í næstu viku mættum við Hannibal í tíma áðan ásamt slatta af fólki til að sitja það sem við tókum sem síðasta tímann. Þá bara mætir gellan ekki. Ætlar semsagt að enda misserið með ópersónulegum tölvupósti sem var svo loðinn að það hálfa hefði verið nóg. Ekkert takk og bless. Eigum eftir að fá fyrri ritgerðina til baka og alles. SPES

Ætla að brydda uppá smá nýjungum á síðunni og velja mynd vikunnar á hverjum fimmtudegi. Það kannski eykur commentin..hmmm. Verð svo að fara að finna mér nýjan teljara, þetta er ekki hægt sko.
** Heba kveður

6 Comments:

At fimmtudagur, nóvember 23, 2006 2:14:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Heheh gott ritgerðarefni... því miður á ég enga mynd til að lána þér...hehe

Ég verð að muna að taka með mér spóluna samt af okkur síðan við vorum litlar, þetta er bara of fyndið...

Annars hlakka ég bara til að sjá þig og alla á laugardaginn... þú lætur mig vita þegar þú veist eitthvað meira um tímasetningu og svona...

kv.anna maria

 
At föstudagur, nóvember 24, 2006 1:12:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Kannski á ég myndbrot með Ron Jeremy á vídeói..............

 
At föstudagur, nóvember 24, 2006 9:33:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ekkert mál að lána þér eins og eina klámmynd Heba mín... Þú verður bara að koma við hjá mér og skoða safnið... og ekki segja neinum frá;)

Annars er ég að fara á Hereford með minni familíu á laugardag...mmm það verður sko alvöru nautakjöt í þetta sinn...:)
kv. Maja

 
At föstudagur, nóvember 24, 2006 1:46:00 e.h., Blogger Heba Agneta said...

Þið eruð fyndin.. Veit ekki hvort maður á að taka ykkur alvarlega. Er annars búin að redda mér eftir að hafa safnað í mig kjarki og biðja um bláa mynd á videóleigunni 107 Reykjavík þegar afgreiðslustúlkan brosti plítt til mín og tilkynnti mér að þau ættu engar svoleiðis!! :o)

 
At föstudagur, nóvember 24, 2006 1:47:00 e.h., Blogger Heba Agneta said...

hún brosti líka blítt..hehe

 
At föstudagur, nóvember 24, 2006 3:19:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ooohhh bara ef ég hefði séð þetta fyrr ég efast eki um það að sósupabbi eigi nokkrar myndir. jafnvel að ron bregði fyrir í einhverjum þeirra, marr veit ekki.

en ég kalla þig góða að hafa skellt þér á leiguna;) hehehe ekki allir sem hefðu þorað því!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home