Kaldhæðnin í E.R áðan..
15 ára kaþólskri stelpu nauðgað, vildi ekki eiga það en foreldrarnir íeinhverju sérstöku sambandi við Jesú svo Luka hjálpaði henni að "missa fóstrið" án vitundar foreldranna.
Abby 37 ára ólétt, ekki planað, hugsaði um það allan þáttinn hvort hún ætti að eiga það eða ekki, var hrædd um að gleyma því útí búð........
Allt endaði þó vel.
Er að drukkna í ritgerðar- og verkefnavinnu þessa dagana. Á að skila 3 STÓRUM 29. nóvember. Samt hef ég aldrei áður verið svo útsjónarsöm að læra jafnt og þétt eins og ég hef gert þessa önnina, meeeen hvað þetta er mikið!
Kvíði samt svakalega fyrir því í vor þegar þetta er búið, hvað tekur þá við???? Maður finnur sér alltaf eitthvað til að hafa áhyggjur af, merkilegt nokk ;o) Hugsa til Danmerkurferðarinnar þegar mest á reynir og syng með Sandy Thom, þá verður allt betra :oD
**Ossokomaso
2 Comments:
já bara að taka þetta á bjartsýninni :-) Þú hleður batteríin í Danmörku.
Kv. Ragnhildur
hehehe þú ert nattúrulega bara snillingur stelpukjáni:) þú massar þessar ritgerðir, ekkert mál marr:) en eg skil þig með óvissuna eftir utskriftina, ég hef endalausar áhyggjur af þessu og kem mér ekki í að skrifa þessu blessuðu ritgerð mína!!!!
Skrifa ummæli
<< Home