......Úúúúldin...... gott orð til að lýsa mér þessa stundina. Veðrið hefur gífurleg áhrif á hvernig manni líður, þannig er það nú bara.
Gerðum lítið sem ekkert um helgina familian. Afrekuðum þó það að bruna í Reykjanesbæ þar sem Stefán stóð sig ansi vel á fyrsta alvöru badmintonmótinu sínu. Hann vann fyrsta leikinn en tapaði öðrum með oddaleik. Engu að síður alveg glæsileg frammistaða hjá honum :o) Í dag var svo bara hangið innandyra enda ekki annað hægt sökum veðurofsans. Ína og Anton ætluðu að koma og vera memm en lögðu ekki út í veðrið svo við lékum bara við þau í 232 í allan dag. Fórum í hádegismat þangað, þau komu svo í kaffi og við fórum svo í kvöldmat til þeirra, borðuðum semsagt non-stopp í ALLAN dag!
Það verður gott að komast í leikfimi á morgun og taka heldur betur á því... Ætla að þyngja lóðin meira að segja, geri Callie stolta af mér og brenni meira í leiðinni..hehe 8o)
Það eru svo einungis 5 dagar í DK!!
Mamma sendi mér þennan í gær, má til með að setja hann með þar sem DK er mér nokkuð ofarlega í huga þessa dagana ;o)
Find mit sure andsigt....
:-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-) :-)
FJOLLEHOVEDE....
Man kan da ikke være sur naar man kender saadan en dejlig og helt fantastisk person som DIG!
**Kæmpe knus
4 Comments:
Úldin var víst líka rétta orðið til að lýsa mér á sunnudaginn. Er fyrst núna að ná mér eftir djamm á laugardaginn. Skildi maður einhverntíma læra af þessu?? Er annars sammála mömmu þinni!
Hæ Heba.
Hafðu það gott úti og góða skemmtun.
Kveðja
En fallega sætt Marta mín :o)
Takk Siggi frændi, hlakka til að sjá þig 25. í góðum gír.
og sagt..hehehe
Skrifa ummæli
<< Home