Þarf aðeins að hella úr, það eru ekki vogarskálar heldur 10L fötur af pirringi, stressi og vonleysi!
Svona dagar eru alveg til að eyðileggja allt bara.
Er gangandi tímasprengja, tikk-takk :
Fékk næst lægstu einkunn fyrir ritgerð sem ég hef fengið á öllum HÍ ferli mínum í gær og sú lægsta var fyrir mína allra fyrstu ritgerð í háskólanum þegar ég kunni ekki að gera heimildaskrá, hvað þá að nota heimildir, fékk semsagt 6,5 fyrir ofbeldisritgerðina mína! Er ekki alveg sátt við þetta/mig eins og gefur að skilja. Þetta þýðir að ég þarf að endurskoða klámritgerðina mína og fá ekki minna en 7,5 fyrir hana vilji ég halda í 1. einkunn meðaleinkunna fram að útskrift!
Æi, svo gengur sérefnisritgerðin ekki vel, finnst ég bara ekki kunna að skrifa ritgerð núna, einungis 8 skrifaðar bls. komnar af 20-25 :o(
Á eftir að reikna 3 kafla í Aðferðafræði auk þess að fá þær glósur fyrir þá tíma sem ég mætti ekki í, endurskrifa og raða glósunum, lesa og reikna fyrir prófið sem er 15. des.
Lesa svakalegt magn af efni, glósa og læra nokkur stk. heilsumódel utan að fyrir Hug, heilsu og forvarnarprófið 20. des.
Fyrir utan venjulegan heimilisrekstur, að skrifa jólakortin og senda þau, kaupa 2 jólagjafir, pakka inn öllum jólagjöfunum sem ég venjulega eeeelska að gera. Svo það versta, að vera án barnanna minna yfir jólin þegar loksins allt stress og öll geðveiki er búin.
**Í alvöru, þá stundum bara stinkar lífið (life stinks ;o))
11 Comments:
Ég finn til með þér Heba mín en ég er nú ekki í vafa um að þú náir þessu enda með þeim duglegari sem ég þekki.
Ég vildi að ég gæti gefið þér smá af tímanum sem ég hef aflögu...
Þú massar þetta elskan mín og mundu bara að þetta er allt þess virði þegar upp er staðið.
knús knús
Kristín
Takk takk :o*
Þú ert ein sú duglegast manneskja sem ég þekki. Það eru ekki allir í háskólanámi og ein með tvö börn takk fyrir. Þér tekst þetta og vertu jákvæð.... það eru svo alveg að koma jól :)Ég veit sko alveg að stundum finnst manni hlutirnir óyfirstíganlegir en einhvern vegin reddast þetta allt. Svo er bara EIN ÖNN EFTIR:) YES
Farðu vel með þig:)
knús og kossar
Lilja Guðrún
Lilja segir stundum að ég sé geðveikur.... Það er sennilega rétt hjá henni.
En ég kann líka að sjóða grjónagraut.
æ elskan, en allt tekur þetta enda...maður verður bara að hugsa svoleiðis þegar maður er alveg að gefast upp.
hehe greyið Teitur...voða er Lilja leiðinleg við þig :-)
Við sjáumst þá bara eftir próf eða jól Heba mín.
Ragnhildur
Go Heba go Heba þú getur þetta. Ég hef engar áhyggjur af þér. kv. Eygló Hlín
Það reddast alltaf allt Heba mín:-) kram karin
Fullt af pústum handa mér...
Takk elskurnar.
Teitur, ert nú ekki svo geðveikur ef þú kannt að gera grjóna, það kunna ekki allir :o)
Knús á ykkur ÖLL
Ég nota norskan Grödris
Heba mín, þú getur þetta eins mikill snillingur og þú ert. Þú ert ekkert smávegis dugleg, mundu það. koss Sigga
Skrifa ummæli
<< Home