
6 1/2 klukkustundir í brottför:
*Búin að pakka í töskuna í hlutföllunum 85% jólagjafir fyrir Thelmu og um 15% fötin mín..hehe
*Búin að brenna myndir á disk til að framkalla fyrir mun minni pening en hér heima
*Búin að kaupa íslenskt nammi handa dönsku Íslendingunum úti
*Rúllutertubrauðin fyrir mömmu enn í frysti en búin að skrifa minnismiða um að setja þau í
töskuna áður en ég held af stað í nótt
*Búin að græja veskið mitt sem inniheldur Visakortið, passann minn, flugmiðann,
jólagjafa-tékklistann og myndavélina að ógleymdu vaselíninu mínu
Semsagt, ég er tilbúin til brottfarar með nýju klippinguna (sjá mynd að ofan :o)), eins gott að flugið mitt verði ekki fellt niður..
**Adios amigos og góða helgi elsku þið!
5 Comments:
Rosalega flott klipping:)
góða skemmtun úti og ég hlakka til að sjá þig á fimmtudagin
Sjá skvísuna með nýju klippinguna, lítur rosa vel út og hlakkar til að sjá hana life. það kemur ekki á óvart að allt hafi verið orðið skipulagt hjá þér og klárt fyrir brottförina...ekkert á síðustu stundu með svona hluti sko.
Sjáumst á fimmtudaginn...Ragnhildur
Flott hár! Skemmtu þér svakalega vel í Danaveldi
Kv. Maja
vona að þú sérst að skemmta þér vel eskan. Töff klipping sæta:)
góóóóóóða feeeeerð sæta mín! skemmtu þér fyrir allan peninginn!
Skrifa ummæli
<< Home