30 október, 2006

Oh, verð alltaf frekar pirruð um mánaðarmótin þegar maður er að fara yfir inn- og út mál. Peningar geta farið agalega í taugarnar á mér !

Skemmti mér vel á laugardagskvöldið, Thelma og Maja komu og við Thelma drukkum áfenga drykki og sungum í singstar fyrir Maju....Tek það fram að Thelma vann mig bara 2svar..múhaha. Maja fór svo bara heim þegar hún var komin með nóg af sönglinu í okkur en við Thelma skelltum okkur í bæinn, byrjuðum á hressó þar sem er alltaf nóg pláss til að dansa en agalega skrítið fólk oft á tíðum. Ílengdumst þar bara enda hálf skrítnar sjálfar á köflum þar til við héldum í það annars merka fyrirbæri, leigubílaröðina. Get svarið það, hefði getað labbað heim og aftur niður í bæ á þeim tíma sem við stóðum þar og biðum eftir leigubíl. Thelma tók ekki í mál að labba heim eftir atburði liðinna helga, skil hana svo sem vel og þakka bara fyrir að hafa látið hana ráða, maður veit aldrei hvað hefði geta gerst!

Mega þynnka á sunnudag - merkilegt hvað maður þarf alltaf að líða fyrir smá kæruleysislega drykkju og tjútt þá sjaldan sem maður lyftir sér upp. Skreið yfir til Vilborgar og Hjalta, spilaði nýja útgáfu af Scrabble við Ragnheiði og borðaði með þeim ágætis gums frá Indó Kína. Horfðum svo á Robin Williams ferðast um á húsbíl með familiunni sinni í mynd sem ég man ekki hvað heitir. Skreið svo alein uppí rúm um miðnætti og steinsvaf til 8:00 í morgun. Kolfinna kom ekki fyrr en um 10:00. Einstök upplifun að vakna ein á mánudagsmorgni. Stefán kemur ekki fyrr en um miðja viku-vetrarfrí í skólanum.

**adios

4 Comments:

At þriðjudagur, október 31, 2006 2:03:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Er sammála, peningar geta líka farið í taugarnar á mér. Það væri sennilega öðruvísi ef maður ætti nóg af þeim :0)

Ragnhildur

 
At þriðjudagur, október 31, 2006 3:42:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Péningar eru bara vesen...

Það er nú ekki svo langt í gott family-djamm... hlakka rosa til :)

Anna María

 
At miðvikudagur, nóvember 01, 2006 4:10:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hey Heba ég á erfitt með mig núna. Finnst þér ekki slæmt að búa í miðbænum liggur við en geta samt ekki labbað heim og þurfa að bíða í röð? Ég þyrfti þess ekki :) Eini skemmtistaðurinn nánast í sama húsi og ég :)

Kv Ína

 
At miðvikudagur, nóvember 01, 2006 9:26:00 e.h., Blogger Heba Agneta said...

Mjú en atburðir liðinna helga ollu þessari hræðslu, svona er Ísland í dag. Sjokkerandi, ég veit!

 

Skrifa ummæli

<< Home