Mjæja.. Komin tími til að tjá sig.
Helgin var fín, róóóleg í alla staði samt.
Horfði á frekar slaka mynd með Eygló og Hannibal á föstudagskvöldið en nammið var gott sem ég lét ofan í mig með henni :o)
Kláraði ritgerðina í Áhrif kláms og ofbeldis eða svona næstum auk þess að kíkja með Thelmu og Birtu í nýja-Ikea....my god hvað það er stórt! Skíttapaði svo fyrir Hjalta og Vilborgu í Scrabble...
Ætlaði að vera svakalega dugleg að læra á sunnudeginum en fór bara í heimilisstörf og Bónus þangað til molarnir mínir komu, eldaði svo dýrindis Chili Sin Carne.
Vikan sem meira að segja er hálfnuð eða næstum fer svo bara hægt af stað. Var heima með Kolfinnu lasna á mánudaginn, lærði vel og mikið í aðferðafræði ásamt J.Möggu í gær og er svo bara löt í dag.....Issss.
Verður hugsað til Danmerkurferðarinnar...Ætla að fara að undirbúa mig enn betur fyrir aðferðafræðiprófið á morgun.
Verð að segja ykkur að það bankaði góður draugur fortíðar á símann minn í gær. Alltaf gaman að rifja upp góðar stundir frá DK 2001-2002!
**Að þessu sögðu, kveð ég
1 Comments:
góður draugur frá DK?? hmmmm.... já erfitt að einbeita sér þegar maður er á leið til útlanda, kemst stundum ekkert annað inn, en gangi þér vel í prófinu á morgunn.
kv. Thelma
Skrifa ummæli
<< Home