06 október, 2006

*Lýsi því hér með yfir að Hjalti er konungur ommilett(n)anna !!
Vorum boðin í omilettu og með henni í gær og mmmmmm.... besta ommiletta sem ég hef smakkað. Vissi ekki að maður gæti lagt svona mikla ástúð í né einfaldlega gert svona góða ommilettu.
Allavega.........
*Kláraði svona 95% af verkefni 1 í Hugur, heilsa og forvarnir í gær inná lesstofu, á bara eftir að fiffa aðeins lúkkið og heimildaskrána, húrra fyrir mér samanber síðustu færslu :o)
*Saumó hjá Þórhildi á miðvikudagskvöldið og þar var á borðum alveg svakaleg súkkuladikaka, verð að muna að fá uppskriftina, alltaf gaman að hitta Pækurnar sínar, kjafta og borða saman gúmmelaði.
*Tók alveg svakalega á því í leikfimi í morgun, þyngdi lóðin á stönginni og allt! Gott að fá útrás hjá Callie fyrir alveg heilmargt bara skulum við segja.

*Helgin: Fara með verðandi unglinginn minn í klippingu, heimsækja mæðgurnar Ellen og Emblu, baka pizzu, eiga notalega kvöldstund með krökkunum, fara uppá Hagamel og hafa það huggó yfir pönnsum al'a Eygló með systrum mínum og c.o, heiðra hann Hafliða 1 árs og hann afa minn 75 ára en fyrst og fremst ætla ég að eiga notalega helgi með gullmolunum mínum tveim :o)

**Eigið góða helgi alle hjúbba

1 Comments:

At laugardagur, október 07, 2006 9:34:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvísa.. ég bankaði á hurðina hjá þér þegar ég var á íslandi en hitti því miður ekki á þig, ætlaði bara að smella á þig einu knúsi en geri það bara næst :D vonandi gengur allt vel hjá þér og þínum. Glæsó hjá þér að byrja aftur að blogga, ánægð með þig..

Kveðja
Kristín Óla

 

Skrifa ummæli

<< Home