"I wish I was a punk rocker with flowers in my hair"
Þessa dagana er þetta lagið....
*Sem kemur mér í gott skap þessa hræðilega dimmu morgna
*Sem hitar kroppinn í ræktinni á morgnanna
*Og kemur mér bara í gott skap whenever I need it.
Helgin var notaleg: Var heima með Kolfinnu á föstudag, fórum familian í Elko og keyptum okkur Thomson dvd-spilara (ekki með p samt ;o)), agalegt að eiga ekki svoleiðis svo urðum að redda því, fengum þennan fína spilara þangað annað kemur í ljós á 6 þúsund. Skelltum okkur á körfuboltaleik KR-Snæfell sem hefði mátt enda betur.
Við mæðgur brunuðum svo til Reykjanesbæjar að heimsækja Hildigunni og Helenu á laugardeginum, næstum unglingurinn fór bara til frænda síns á meðan.
Í gær tók ég mig svo heldur betur til og bakaði vöfflur, múffur og eplaköku og bauð systrum mínum og c.o-um í kaffi.
Semsagt bara huggó í alla staði....
Verð svo að vera dugleg í vikunni svo ég geti notið fríhelgarinnar um næstu helgi að einhverju marki :o)
**Sandy Thom er svo málið þessa dagana
7 Comments:
Maður þarf greinilega að fara að kveikja á útvarpi eða einhverju slíku til að vera með á nótunum:-/ Er þetta mikið spilað á rás1 ??? Hún næst nefnilega vel hérna í sveitinni.
Hvenær er svo hittingur eiginlega?
Kveðja Erna
Núna á þetta lag alltaf eftir að minna mig á þig! Hjalti raular þetta nú stundum... hahahaha :)
hehe...erna þú þarft bara að koma oftar í höfuðborgina til að vera inní því nýjasta :-) já er ekki hittingur í vikunni?
Kveðja Ragnhildur
Æðislegt lag..
Ég get hitt ykkur á fimmtudag til 15:00 á þá að mæta í tíma sem ég tími ekki að sleppa.
Get svo hist á föstudag líka..
Segiði bara til.
föstudagur hentar miklu betur fyrir mig. Þarf að fara í bæinn þá.
líst vel á föstudag-ragnhildur
Stelpur..þið verðið að kvitta undir skrifin svo maður viti hver er að kommenta :o)
Skrifa ummæli
<< Home