12 október, 2006

Hef nú bara aldrei á mínum háskólaferli lent eins seint í prófum eins og núna :o(
Týpískt þegar ég er ekki með molana mína á aðfangadag þá fæ ég ekki einu sinni góðan tíma með þeim í jólaundirbúningnum sökum próflesturs og ritgerðaskrifa....muhu.
Aðferðafræðiprófið er 15. des > 9-12
Hugur, heilsa og forvarnir er svo 20. des > 13:30-16:30

Verð bara að vera dugleg alveg fram í desember svo ég geti tekið frídaga inn á milli með þeim, það ætti þá að vera hvatning til að standa sig í stykkinu. Ætla einmitt að halda áfram við ritgerðarskrif um ofbeldi í sjónvarpi í þessum töluðu orðum...nýta tímann!
**Farin

6 Comments:

At fimmtudagur, október 12, 2006 2:18:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

það er alla vega kostur að hafa góðan tíma á milli prófa til að lesa.

Kv. Ragnhildur

 
At fimmtudagur, október 12, 2006 6:25:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvís!
Ég held að það sé kominn tími til að ég kvitti fyrir mig ;)
Það var mjög gaman að hitta ykkur í dag, gangi þér vel að læra og svo sjáumst við í næstu viku :)
Leiðinlegt með prófin en maður ræður því víst ekki...

 
At föstudagur, október 13, 2006 12:03:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Heba
Ég segi eins og Hildigunnur, löngu kominn tími til að ég kvitti fyrir mig. Ég heiti því að kvitta á allar færslur hér eftir! Takk fyrir daginn :)

 
At föstudagur, október 13, 2006 11:48:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ þetta er bara í fyrsta sinn sem ég er búin á undan þér í prófum á okkar háskólaferli, víhí en það er víst ekki nema hálfur dagur á milli okkar svo það er nú ekkert rosalegt.

 
At föstudagur, október 13, 2006 12:46:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Rosa líst mér vel á að þú skellir þér til Köben, þú átt það svo skilið :)... en leiðinlegt að prófin séu svona seint.
Varð að kvitta svona til tilbeytingar :)
Bið rosa vel að heilsa.
Kv. Gerður

 
At laugardagur, október 14, 2006 12:13:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Lét verða af því og las bloggið :)
Kv Ína

 

Skrifa ummæli

<< Home