Í dag er það lesstofan.. Er búin að hita mér te, kveikja á lampanum og raða öllum bókunum um leiki barna pent upp við hliðina á mér. Þá er bara að byrja að lesa og punkta hjá sér.....
*************
Um helgina er fríhelgi, Kolfinna fer reyndar í dag, strax að loknum leikskóladegi svo við Stefán dundum okkur tvö, ætla að fara og fylgjast með honum á badmintonæfingu og svo ætlum við að fara og fá okkur að borða, ég valdi Grænan Kost en hann KFC, frekari samningaviðræður eiga svo eftir að fara fram. Á morgun fer hálf-gelgjan mín svo upp á Skaga og ég fæ Trillurnar mínar í heimsókn ásamt snúllunum sínum. Föstudagskvöldið verður svo tekið með trompi þegar ég skelli mér á Mýrina í bíó.... Ætla ekki ein en á eftir að vinna í því, er einhver game?
Laugardagurinn verður svo góð blanda af leikfimi (ef ég nenni að vakna), lærdómi, afslöppun og huggulegheitum bara. Það er allavega stefnan.
Nú er hins vegar komin tími til að læra.......
**15 dagar í DK
2 Comments:
Já Bára mín...
Eða e-ð... hehehehe
Takk elsku heba fyrir okkur í dag. Hafðu það gott um helgina.
Kv. Ragnhildur
Skrifa ummæli
<< Home