02 október, 2006

Broadway laugardagskvöld: Á Móti Sól skiluðu sko sínu vel. Magni var æði! Dilana var meira æði! Félagsskapurinn sem ég var með toppaði allt og gerði kvöldið enn skemmtilegra.
Takk fyrir kvöldið kæru þið :o)

Annars var pabbahelgin fín, leiddist ekki eins og svo oft áður undanfarið. Við Eygló fórum í bíó á föstudagskvöldið: John Tucker must die, ekki mynd til að borga 900,- í bíó fyrir en það var stemmari að labba í bíó í meiriháttar veðri, horfa á Jessie Metcalf í 90 mínútur og labba aftur heim í sama góða veðrinu. Laugardagurinn var svo toppurinn á allri helginni eins og fram hefur komið.

Vikan byrjar vel, leikfimi í morgun, þvottastúss, tími, verslað inn fyrir vikuna og dundað sér með krökkunum. Thelma væntanleg (kannski Maja og Fanný líka) í huggulegheit í kvöld...Max og Doritos með heitu sósumalli ásamt So you think you can dance á Sirkus 21:30.

Skelli inn myndum af ballinu......Gaman að sjá teljarann dag frá degi :o) Heyrumst

7 Comments:

At mánudagur, október 02, 2006 8:44:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Myndirnar komnar inn...enjoy :o)

Heba

 
At þriðjudagur, október 03, 2006 11:43:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég ætti kannski bara að gefa þessum elskum séns, heyrist á öllum að það hafi verið svaka stuð:)

 
At þriðjudagur, október 03, 2006 12:13:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það var alveg geggjað...En samt geðveiki að borga 7000 kall fyrir miðann....Það gera bara geðveikir!
Heba

 
At þriðjudagur, október 03, 2006 1:18:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að sjá myndirnar af ballinu, greinilega verið stuð á ykkur.

Ég og Lilja förum á mömmumorgun á fimmtudaginn ;-) ekki meira partý en það :-)

Þín var sárt saknað á sunnudaginn og eins og áður þegar þig hefur vantað kemur alltaf í ljós hver heldur uppi samræðunum :-) Þú bara verður að láta sjá þig næst.

Kveðja, Ragnhildur

 
At þriðjudagur, október 03, 2006 2:48:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Nei, blessuð og gaman að sjá að maður getur fylgst með þér hérna elskan. Hlakka til að kíkja reglulega hér inn. Kveðja Erna í sveitinni:-)

 
At þriðjudagur, október 03, 2006 2:49:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

svaka partí hjá okkur á fimmtudagin:) nei bara mömmumorgnar eins og Ragnhildur skrifaði:)
Ég kíki á ykkur við tækifæri....

 
At þriðjudagur, október 03, 2006 6:38:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, ég fór líka á John Tucker must die í bíó og ég gef henni ekki heldur neitt sérstaka einkunn. Hún er alveg í anda allra stefnumóta unglinga mynda sem gerðar hafa verið síðastliðin 10 ár. Hún var fyrirsjáanleg og óttarlega halló á köflum. Annars hægt að hlæja að henni á köflum.

 

Skrifa ummæli

<< Home