Hér skrifar fráfarandi meðstjórnandi í hússtjórn Vetrargarða....Jebb, er bara normal íbúi frá og með kvöldinu í gær eins og meirihluti hinna þar sem ný hússtjórn var kosin í gær á frekar langdregnum fundi með mis-skemmtilegu fólki skulum við segja. Það sem sumum dettur í hug að "tuða" um. Þarf því að taka bévítans ræstihringinn allavega 2svar áður en ég flyt héðan út næsta vor...ojojoj.
Eddi fráfarandi meðstjórnandi líka fór allavega á kostum við upplestur í spurningakeppninni og nammið og gosið stóð fyrir sínu, nammidagurinn því færður til um nokkra daga, hvað er það á milli vina.
Komst að því í morgun þegar við Kolfinna ætluðum að halda af stað í leikskólann að mér ´tokst að læsa bíllykilinn inní bíl í gær þegar ég burðaðist með gosið fyrir fundinn inn og borgaði einhverjum karlpung 3000,- kall fyrir að koma og opna fyrir mér :o(
Dreifði huganum og bætti mér pirringinn við peningaplokkið og klaufaskapinn upp þegar ég sankaði að mér fullt af heimildum fyrir sérefnisritgerðina. Læt vita þegar ég fer að glugga í þær, það er nefnilega annað mál ;o)
Við mæðgur fórum í sund seinnipartinn ásamt Thelmu og Birtu Rós, merkilegt hvað ég nenni ÖR-sjaldan en alltaf er þetta hin fínasta skemmtun þegar maður er mættur á staðinn og komin ofaní....allavega þangað til maður þarf að fara uppúr.
Kvöldið: pakka fyrir krakkana, græja leikfimifötin og horfa á CSI:Miami
Later**
3 Comments:
Og ekki gleyma að kíkja út klukkan 22:00 í kvöld. Skoða stjörnurnar og svona. (Líklega er þetta of seint comment til að þú sjáir það í tæka tíð en anyways.)
Hæ takk fyrir sundið í dag, mín grenjaði alla leiðina heim út af ísnum:) fékk klaka.
Ég sá engar stjörnur í kvöld, man eftir fallegum norðuljósum á Móum hér í gamla daga. kv. Thelma.
Hæ takk fyrir sundið í dag, mín grenjaði alla leiðina heim út af ísnum:) fékk klaka.
Ég sá engar stjörnur í kvöld, man eftir fallegum norðuljósum á Móum hér í gamla daga. kv. Thelma.
Skrifa ummæli
<< Home